Leikfélag Akureyrar - LA

 Atvinnuleikhúsið. Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins.

Atvinnuleikhúsið

 Atvinnuleikhúsið.

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973. Starfsemin er í hjarta Akureyrar í fallegu nýuppgerðu leikhúsi, Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Þann 16. febrúar 2006 opnaði leikhúsið nýtt leikrými sem það nefnir einfaldlega Rýmið. Rýmið er svartur kassi sem hægt er að nýta á ólíka vegu. Leikhúsið sýnir einnig í öðrum rýmum bæði innan bæjarins en einnig í Reykjavík. Verkefnaskrá leikhússins hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir.  Árlega sviðsetur leikhúsið fjórar til sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra, auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. LA býður einnig upp á vandaðar og fjölbreyttar gestasýningar á hverju ári.  Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá leikhúsinu og listamenn leikhússins vinna reglulega með nýjum leikskáldum.  Fjöldi fastráðinna leikara er nokkuð breytilegur á milli tímabila en leikhópurinn hefur talið 4-11. Gestir leikhússins koma frá landinu öllu og í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að fara í leikhúsferðir til Akureyrar til að sjá þær leiksýningar sem eru á boðstólum. Leikárið 2005-2006 var metár í sögu LA, þá sáu yfir 25.000 gestir sýningar leikhússins á Akureyri auk þess sem nálægt 20.000 gestir sáu sýningar LA í Reykjavík á árinu. Leikárið á eftir fjölgaði gestum enn og sáu rúmlega 27.000 gestir sýningar á Akureyri en yfir 12.000 gestir sýningu félagsins í Rvk.  Fló á Skinni er aðsóknarmesta sýning í sögu LA en hana sáu yfir 15.000 gestir á leikárinu 2007-2008. Sýningar Leikfélags Akureyrar hafa hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna í gegnum tíðina. Auk uppsetninga leiksýninga þá leggur Leikfélag Akureyrar áherslu á leiklistarkennslu fyrir börn og unglinga. Það á í samstarfi við fjölda aðila, skóla og menntastofnana um námskeiðahald og leiklistarkennslu og rekur sinn eigin Leiklistarskóla.

LA á í víðtæku samstarfi við fjölda fyrirtækja og stofnana. Mörg fyrirtæki hafa gerst máttarstólpar leikhússins, þeir gera leikhúsinu kleift að standa fyrir jafn viðamikilli starfsemi og raun ber vitni.

Á heimasíðunni er hægt að lesa um og skoða myndir úr sýningum allt frá árinu 1993, sjá: Eldri verk, einnig er hægt að lesa um sögu Samkomuhússins ogstefnu atvinnuleikhússins.

Kynningarrit leikhússins er hægt að fá hér á pdf-formi fyrir eftirtalin leikár.

2004-2005

2005-2006

2006-2007

2007-2008


Leikhússtjórar LA:


Magnús Jónsson 1972-1974
Eyvindur Erlendsson 1974-1977
Brynja Benediktsdóttir 1977-1978
Oddur Björnsson 1978-1980
Signý Pálsdóttir 1982-1986
Pétur Einarsson 1986-1988
Arnór Benónýsson 1988-1989
Sigurður Hróarsson 1989-1991
Signý Pálsdóttir 1991-1993
Viðar Eggertssson 1993-1996
Trausti Ólafsson 1996-1999
Sigurður Hróarsson 1999-2002
Þorsteinn Bachmann 2002-2004
Magnús Geir Þórðarson 2004-2008

María Sigurðardóttir tók við sem leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar í mars 2008.

Stjórn LA er skipuð Sigmundi Erni Rúnarssyni, formanni, Ólafi Aðalgeirssyni, Kjartani Ólafssyni, Örnu Valsdóttur og Gesti Einari Jónssyni. Nánari upplýsingar um fastráðna starfsmenn er að finna  hér.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf