Leikfélag Akureyrar - LA

Leiklistarskólinn er fyrir fólk á aldrinum 8-15 ára. Sækja skráningablað hér Leikárið

Leiklistarskóli LA

Leiklistarskólinn er fyrir fólk á aldrinum 8-15 ára.

Sækja skráningablað hér

Leikárið 2008-2009 stofnaði LA sinn eigin leiklistarskóla. Aðsóknin fór fram úr björtustu vonum og þann vetur voru haldin tvö námskeið. 

Í ár var ákveðið að taka næsta skref og lengja námið og gera það ítarlegra. Náminu er skipt upp í tvær annir, haustönn og vorönn, og stendur hvor önn yfir í 10 vikur. Nemendur mæta tvisvar í viku og eru í klukkutíma og fjörutíu míníutur í hvert sinn.

Námið:

Leiklist:
Kennd er grunnfærni í leiklist. Farið í undirstöðuatriði í einbeitingu, trausti og tjáningu. Nemendur fá að spreyta sig jafnt á skrifuðum texta og spunavinnu og fá auk þess þjálfun í að standa á sviði. Hluti námsins fer síðan í að kynna aðra innviði leikhússins og munu gestakennarar koma í heimsókn. Nemendur fá einnig að líta inn á æfingar hjá Leikfélagi Akureyrar. Nemendum verður skipt í hópa miðað við reynslu, og hjá þeim nemendum sem voru á haustönn þyngist námið og verður viðameira.

Söngur:
Nemendur koma í smærri hópum í söngtíma þar sem kennd er létt söngtækni, öndun og raddbeiting. Nemendur æfa sig á léttum sönglögum og finna lag í samráði við kennara sem þeir vilja syngja í lokasýningunni - þó þarf enginn að syngja einsöng sem það ekki vill. Nemendur sem voru í skólanum á haustönn fá viðameiri verkefni og ítarlegra nám í sönglistinni.

Hverri önn lýkur með nemendasýningu á sviði LA og er aðgangur ókeypis.

Í lok vorannar verður sett á svið sýning þar sem allir nemendurnir taka þátt, og verður þá skipað í hlutverk miðað við lengd náms og reynslu.

Aðalkennarar við Leiklistarskóla LA í vetur eru: í leiklist: Anna Bergljót Thorarensen og í söng: Ásta Magnúsdóttir.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf