Nýtt svið
Þann 16. febrúar árið 2006 fékk LA nýtt leikrými undir starfsemi sína sem nefnt var Rýmið. Rýmið er mikilvæg viðbót við starfsemileikhússins því þar gefst kostur á sviðsetningum sem eru ólíkar þeim sem eru í Samkomuhúsinu. Rýmið er svartur kassi svo þar er hægt að snúa sviði og áhorfendasvæði á ólíka vegu, allt eftir því hvað hentar hverri leiksýningu. Rýmið nýtist einnig til æfinga og fundahalda. Fyrsta sýningin í Rýminu var rómuð uppsetning á Maríubjöllunni.
Fyrirtækið TM gekk af rausnarskap til liðs við LA til að gera leikhúsinu kleift að kaupa betri búnað til sýningarhalds í
Rýminu. Fjárfest var í tækjabúnaði, pöllum og stólum með dyggum stuðningi TM.














