Hlutverk LA er að snerta stóran hóp áhorfenda.
LA setur upp og sýnir leiksýningar sem eiga að snerta áhorfendur með því að tala til þeirra og skipta þá máli.
Framtíðarsýn LA er að leikhúsið njóti viðurkenningar fyrir leiksýningar sem eru fyllilega sambærilegar að gæðum við það besta sem gerist hérlendis og erlendis.
Stefnumið:
- Að sýningar leikhússins séu kraftmiklar og í hæsta gæðaflokki
- Að leikhúsið þjóni breiðum hópi
- Að leikhúsið sæki nýja leikhúsgesti
- Að "ala" upp leikhúsgesti framtíðarinnar
- Að leikhúsið laði til sín þá listamenn sem fremstir standa hverju sinni eða þá sem eru efnilegir og líklegir til að bera með sér nýjan kraft
- Að listamönnum þyki eftirsóknarvert að starfa fyrir LA og starfsfólk hlakki til að koma til vinnu
- Að leikhúsið sé vel rekið og innan fjárhagsramma
- Að leikhúsið eigi í víðtæku samstarfi við ýmsa aðila og skili sönnum virðisauka til ríkis, bæjar og annarra samstarfsaðila














