Flýtilyklar
Andrea Gylfadóttir
- Starfstitill
- Tónlistarstjórn
- Ferilskrá
-
ANDREA GYLFADÓTTIR – er tónlistarstjóri í Rocky Horror, ásamt því að leika Columbiu
Andrea tók burtfararpróf frá Söngskóla Reykjavíkur árið 1987. Helstu hljómsveitir sem hún hefur sungið með eru: Grafík, Vinir Dóra, Blúsmenn Andreu, Borgardætur, Todmobile, Tweety og ýmsar djasshljómsveitir. Hún hefur einnig komið fram sem einsöngvari með sveitum eins og Stórsveit Reykjavíkur, Lúðrasveit Reykjavíkur og fjölda íslenskra kóra. Andrea hefur sungið inn á fjölda hljómplatna. Andrea sá um tónlist í uppfærslu Þjóðleikhússins á Kirkjugarðsklúbbnum. Hún fór með hlutverk Evítu í samnefndum söngleik sem settur var upp 1997 í Íslensku Óperunni og í Augun þín blá, sem sett var upp í Borgarleikhúsinu. Einnig var hún í einu af aðalhlutverkunum í Ain´t Misbehaven, sem sýnt var í Loftkastalanum. Hún á hluta af textum og fór með hlutverk gulrótarinnar í barnaleikritinu Ávaxtakörfunni. Einnig á hún alla söngtexta í barnasöngleiknum Benedikt búálfi sem sýndur var í Loftkastalanum 2002-2003. Andrea hefur unnið til fjölda verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum bæði sem textahöfundur og flytjandi og margoft verið tilnefnd sem söngkona ársins. Andrea söng hlutverk plöntunnar, Auðar II í sýningu Leikfélags Akureyrar á Litlu hryllingsbúðinni árið 2006 og hlaut Grímuna fyrir. Árið 2009 samdi Andrea tónlistina við sýningu LA Falið fylgi.













