Flýtilyklar
Björn Ingi Hilmarsson
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
-
BJÖRN INGI HILMARSSON - leikari
Björn Ingi útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands 1990. Hann starfaði sem “freelance” leikari fyrstu sex árin og lék þá m.a. hjá Leikfélagi Akureyrar í Ættarmótinu eftir Böðvar Guðmundsson og Kysstu mig Kata, hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Dúfnaveislunni, Blóðbræðrum, Ronju ræningjadóttur, ofl., eða Þjóðleikhúsinu þar sem hann lék m.a. í Þrettándu Krossferðinni, Gaukshreiðrinu, Sem yður þóknast, Skilaboðaskjóðunni, og einleikinn Lofthræddi Örninn hann Örvar. Einnig tók hann þátt í samstarfsverkefni Þjóðleikhússins, Íslensku Óperunnar og Listahátíðar, sem sögumaður í Niflungahringnum. Hann starfaði með leikhópnum Augnablik í sýningunum Dimmalimm, Júlíu og Mánafólkinu og Tristan og Ísold og lék einnig Rocky í Rocky Horror hjá Flugfélaginu Lofti. Björn Ingi var fastráðinn leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1996–2008 og lék þar í yfir 30 sýningum, meðal annars: Galdrakarlinn í Oz, Feður og Synir, Sex í sveit, Mávahlátur, Djöflarnir, Beðið eftir Godot, Fjandmaður fólksins, Sölumaður deyr, Sporvagninn Girnd, Híbýli Vindanna, Mein Kampf og Fýsn. Björn Ingi hefur einnig tekið þátt í sýningum Íslenska Dansflokksins, Jörfagleði, Coppelíu og Duo, ásamt fjölmörgum dansleikhúsverkefnum. Meðal kvikmynda sem Björn Ingi hefur leikið í eru, Slurpinn og Co, Regína, Djöflaeyjan, Reykjavík Rotterdam og Bræðrabylta. Að auki hefur hann leikið í fjölmörgum útvarpsleikritum auk sjónvarpsmynda, til dæmis Hamrinum. Björn Ingi lék síðastliðið leikár hlutverk Richard Hannay í hinum vinsæla gamanleik 39 þrep, sem var valin Áhorfendasýning ársins árið 2010. Björn Ingi er að vinna að leiksýningu um Helga magra í samstarfi við LA, auk þess sem hann mun koma að fleiri verkefnum á vegum LA í vetur.













