Leikfélag Akureyrar - LA
Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar
Bryndís Ásmundsdóttir
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
- BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR - leikur Magentu í Rocky Horror
Bryndís útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands, leiklistardeild vorið 2003. Hún hefur meðal annars komið fram í Nínu og Geira með Björgvini Halldórssyni á Broadway, Tina Turner show á Broadway ásamt Sigríði Beinteinsdóttur og túlkaði eftirminnilega Janis Joplin ásamt Ilmi Kristjánsdóttur í verkinu Janis 27 sem sett var upp í Íslensku óperunni. Bryndís hefur verið söngkona Búðabandsins til margra ára og hefur alla tíð verið iðin við að koma fram með hljómsveitum og er ekki síður þekkt söngkona en leikkona. Bryndís hefur auk þess leikstýrt uppfærslum áhugaleikfélaga víðsvegar um landið.
Dagatal
Ágúst 2010
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | |