Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Finnur Arnar Arnarsson

Starfstitill
Leikmynd
Ferilskrá

FINNUR ARNAR ARNARSSON - Leikmyndahönnuður
Finnur Arnar lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991. Hann starfaði sem leikmunavörður og sviðsmaður í Þjóðleikhúsinu eftir útskrift en fór fljótlega að hanna leikmyndir. Hann var einn helsti leikmyndahönnuður hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu um árabil og hannaði þar m.a. leikmyndir í sýningunum Himnaríki, Birtingur, Að eilífu, Síðasti bærinn í dalnum, Við feðgarnir, Salka - ástarsaga, Vitleysingarnir, Platanov og Englabörn. Í Þjóðleikhúsinu hefur Finnur Arnar hannað leikmyndir við West Side Story, Kardemommubæinn, Cyrano frá Bergerac, Pabbastrákur og Sumarljós. Í Borgarleikhúsinu hannaði Finnur Arnar leikmyndir við Galdrakarlinn í Oz, Stjórnleysingi ferst af slysförum, Sól og máni og nú í vetur hannaði hann leikmynd fyrir Rautt brennur. La Boheme og Janis 27 eru sýningar sem hann hannaði fyrir Íslensku Óperuna. Finnur Arnar hefur hannað leikmyndir fyrir LA í nokkur ár og má þar nefna Vefarann mikla frá Kasmír, Óvitana, Falið fylgi og leikárið 2009-2010 39 þrep. Finnur Arnar starfar einnig sem myndlistarmaður og hefur haldið fjölda einka- og samsýninga hér heima og erlendis.

finnur_arnar_arnarson.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf