Leikfélag Akureyrar - LA
Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar
Guðmundur Ólafsson
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
- GUÐMUNDUR ÓLAFSSON leikur Sögumann og Dr. Scott í Rocky Horror og Ben í Þögli þjónninn
Guðmundur Ólafsson stundaði nám í Leikhúsfræðum við Hafnarháskóla 1975-1977. Hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands 1981 og starfaði fyrst með Alþýðuleikhúsinu þar sem hann lék m.a. í Don Kíkóta. Þá tók hann þátt í nokkrum sýningum í Þjóðleikhúsinu s.s. Línu Langsokk, Gæjum og píum og Sveik í seinni heimsstyrjöldinni. Stærstan hluta ferilsins hefur Guðmundur unnið með Leikfélagi Reykjavíkur. Fyrst 1984 þegar hann lék njósnara í Félegt fés. Síðan hefur hann leikið rúmlega fjörutíu hlutverk hjá félaginu, m.a í Land míns föður, Heimsljósi, Platonof og Vanja frænda. Guðmundur lék Jón Hreggviðsson í leikgerð Bríetar Héðinsdóttur á Íslandsklukkunni. Þá má nefna sýningarnar Tartuffe, Lér konungur, Chicago, Lína Langsokkur, Honk!, Híbýli vindanna, Draumleikur, Viltu finna milljón, Mein Kampf og Hetjur. Guðmundur hefur leikið í nokkrum kvikmyndum, m.a. í Djöflaeyjunni og Nóa albínóa.
Guðmundur er vinsæll barnabókahöfundur og hefur tvisvar hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin; árið 1986 fyrir Emil og Skunda og árið 1998 fyrir Heljarstökk afturábak. Hann er höfundur og leikari leikritsins Tenórinn. Þá skrifaði hann framhaldsþætti fyrir sjónvarp; Fornbókabúðina og Kallakaffi.
Þess má geta að Guðmundur lék á námsárum sínum við MA í uppfærslu Menntaskólans á Rómeó og Júlíu, (hann lék þó hvorki Rómeó né Júlíu) og leikárið 1973–1974 lék hann hjá LA í sýningunum Don Juan, Haninn háttprúði og Halló krakkar! Guðmundur lék hjá LA í Falið fylgi leikárið 2008-2009 og mun leika í Þögli þjónninn sem frumsýnt verður í október.
Dagatal
Ágúst 2010
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
| 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
| 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
| 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
| 29 | 30 | 31 | |