Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Halldór Gunnlaugur Hauksson

Starfstitill
Hljóðfæraleikari
Ferilskrá
HALLDÓR GUNNLAUGUR HAUKSSON - Trommuleikari í Rocky Horror
Halldór Gunnlaugur (Halli Gulli) fæddist  á Akureyri árið 1966. Hann stundaði slagverksnám hjá Roar Kvam á Akureyri um og starfaði með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum um árabil.  Halldór flutti til Reykjavíkur 1988 og lærði hjá Marteen Van Der Falk í tónlistarskóla FÍH í tvö ár. Með náminu starfaði hann við tónlist. Halldór spilaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands og  tók þátt í nokkrum leiksýningum hjá Leikfélagi Reykjavíkur ásamt því að spila með Rokkabilly-bandi Reykjavíkur og fleiri tónlistarmönnum. Síðar lá leiðin í poppbransann og þar lék hann m.a. með hljómsveitum eins og Gammar, sem er jazz-funksveit, Loðin Rotta, Stjórnin, Skriðjöklar, Hljómar, Gospelkór Reykjavíkur og Gospelkompaníið. Halldór var um nokkurra ára skeið í hljómsveit Gunnars Þórðarsonar sem sá um undirleik á ýmsum uppákomum og sýningum á Broadway. Einnig hefur hann spilað inn á fjölmarga hljómdiska. Í dag starfar Halldór með ýmsum tónlistarmönnum hér norðan heiða og kennir á slagverk í Tónlistarskóla Akureyrar. Hann vann síðast fyrir LA við sýninguna Litla hryllingsbúðin árið 2006.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf