Leikfélag Akureyrar - LA
Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar
Jana María Guðmundsdóttir
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
- JANA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR – Janet Weiss í Rocky Horror
Jana María Guðmundsdóttir stundaði nám í leiklist við Royal Scottish Academy of Music and Drama, RSAMD, í Glasgow frá 2006-2009. Í skólanum tókst Jana á við fjölbreytt hlutverk, m.a. Dr. Herder í Ruling Class, Frú Bergman í Vorið vaknar, Nornina í Macbeth ásamt því að starfa fyrir Citizens Theatre og Þjóðleikhúsið í Skotlandi, NTS. Að námi loknu leikstýrði hún Sögu Dátans fyrir Summerfest RSAMD. Jana María var einn af stofnendum Blood and Milk leikhópsins sem setti up hús Bernörðu Alba í Glasgow 2009 og fór hún þar með hlutverk Emilíu. Áður en Jana María hóf leiklistarnám hafði hún stundað söngnám við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Dóru Reyndal og kennt leiklist og söng. Jana María hefur sviðsett söngtónleika með ýmsum tilbrigðum, m.a. fyrir Menningarnótt og Ljósanótt. Síðastliðinn vetur hélt hún tónleikaröð sem hún nefndi Sögulegir söngfuglar, þar sem íslenskar söngkonur voru heiðraðar. Jana María var fastráðin hjá LA leikárið 2009-2010 og lék í Lykillinn að jólunum og titilhlutverkið í Lilju, ásamt því að taka þátt í Leiklestrum LA, Þjónn í súpunni, samstarfsverkefni LA og Friðriks V, og Sagan af dátanum, samstarfsverkefni LA og SN. Í vetur mun hún leikstýra Pétri og úlfinum í samstarfi LA og SN í Hofi. Jana María mun kenna söng í Leiklistarskóla LA í vetur og taka þátt í fleiri verkefnum fyrir LA.
Dagatal
Febrúar 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | 1 | | | |
| 6 | 7 | 8 | | | |
| 13 | 14 | 15 | | | |
| 20 | 21 | 22 | | | |
| 26 | 27 | 28 | 29 | |