Leikfélag Akureyrar - LA
Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar
Kristín Thors
- Starfstitill
- Hárkollugerð
- Ferilskrá
- KRISTÍN THORS Hárkollugerð í Rocky Horror
Kristín Thors vann fyrst við leiksýningu í Þjóðleikhúsinu þegar hún var 15 ára, en þá vann hún í hárgreiðsludeildinni við sýningu á Madam Butterfly. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann 1965-66 og leiklistarsögu og leikstjórn nam hún við Háskólann í Minnesota árið 1971-72. Kristín nam hárkollugerð hjá Margréti Matthíasdóttur hárkollumeistara og leikhúsförðun lærði hún síðan í London, í Henley on Thames. Einnig hefur hún sótt fjölda námskeiða í faginu svo sem í Berlín, Kaupmannahöfn og Osló.
Kristín vann lengst af í Þjóðleikhúsinu við hárkollugerð og förðun og meðal sýninga sem hún vann við þar eru Faust, Káta ekkjan, La Boheme, Sporvagninn Girnd, Sólarferð, Náttbólið, Lér Konungur, Vesalingarnir, My Fair Lady, Gæjar og píur, Halldór í Hollywood, Edith Piaf og Gauragangur.
Síðustu áratugina hefur Kristín unnið hjá ýmsum leikhúsum m.a. Alþýðuleikhúsinu, Loftkastalanum, Iðnó og Borgarleikhúsinu. Hún hefur einnig unnið við kvikmyndir, auglýsingar, sjónvarpsþætti og aðra viðburði. Hún sá um gervi/hár í kvikmyndunum Dansinn sem Ágúst Guðmundsson leikstýrði og Njála í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar.
„Fyrir mér er leikhús alltaf ný upplifun sem byggist á ástríðu og virðingu“ segir Kristín Thors.
Kristín vinnur nú í fyrsta sinn hjá LA og þökkum við henni hjartanlega samstarfið.
Dagatal
Febrúar 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | 1 | | | |
| 6 | 7 | 8 | | | |
| 13 | 14 | 15 | | | |
| 20 | 21 | 22 | | | |
| 26 | 27 | 28 | 29 | |