Flýtilyklar
Magnús Jónsson
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
-
MAGNÚS JÓNSSON – leikur Frank N Furter í Rocky Horror
Magnús útskrifaðist sem leikari frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991. Áður hafði hann 1986-1987 numið hjá Helga Skúlasyni leikara,
Einnig stundaði hann nám í trúðsleik hjá Julien Cottereou árið 2004.
Magnús var fastráðinn leikari hjá Borgarleikhúsinu um tíma og þar lék hann m.a. í Ljóni í síðbuxum, Ronju Ræningjadóttur, Þrúgum reiðinnar, Englum í Ameríku, Leynimel 13, Degi vonar og Gosa. Magnús hefur einnig leikið í fjölmörgum söngleikjum; Blóðbræðrum, Evu Lunu, Tvískinnungsóperunni, Gretti og Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu. Þar lék hann einnig í Kabarett árið 1993 og árið 2005 lék hann síðan aðalhlutverkið í sama söngleik í Íslensku óperunni. Magnús lék hlutverk Vince Fontaine í uppsetningu Loftkastalans á Grease sumarið 2009. Aðrar sýningar sem Magnús hefur leikið í eru m.a. Brennuvargarnir í Þjóðleikhúsinu, gestaleikari í Sumargestum hjá nemendaleikhúsinu, Besti volgi bjórinn í bænum og Nætur í Hafnarfirði með leikhópnum ÞORMAGUÐ. Magnús hefur í áraraðir unnið við talsetningu á kvikmyndum og auglýsingum. Magnús er Íslendingum að góðu kunnur fyrir fjölmörg hlutverk í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þeirra á meðal eru: Malbik, Reykjavík – Rotterdam, Strákarnir okkar, Pressa, Ástríður, Svartir englar og Réttur 1. og 2. Magnús var einn af stofnendum hljómsveitarinnar Gus Gus og starfaði með þeim í fjögur ár. Einnig stofnaði hann Silfurtóna,
gaf út hljómplötu árið 2000 sem BLAKE og á síðasta ári gaf hann út plötu með tvíeykinu, BB&BLAKE en í þeirri hljómsveit starfar hann í dag. Rocky Horror er fyrsta leiksýningin sem Magnús tekur þátt í hjá LA.













