Flýtilyklar
Matthías Matthíasson
- Starfstitill
- Leikari
- Ferilskrá
-
MATTHÍAS MATTHÍASSON leikur Eddie í Rocky Horror!
Matthías Matthíasson ólst upp á Dalvík og fluttist 12 ára gamall til Reykjavíkur. Hann vakti fyrst athygli þegar hann tók þátt í uppsetningu á Hárinu 1994 í Íslensku óperunni aðeins 18 ára gamall. Hann tók einnig þátt í uppsetningu á söngleiknum Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu árið 1995. Sama ár hlaut Matthías tilnefningu sem besti nýliðinn á Íslensku tónlistarverðlaununum en varð að láta í minni pokann fyrir snillingunum í Botnleðju. Matthías hefur sungið og leikið með fjölda hljómsveita svo sem Pöpunum, Dúndurfréttum, Buff, Reggae on ice ásamt því að syngja fyrir ekki ómerkari mann en Íþróttaálfinn í Latabæ bæði fyrir íslenska áhorfendur og ameríska. Einnig hefur Matti sungið inn á fjöldann allan af hljómplötum. Matti, eins og hann er kallaður, lék í barnasöngleiknum Hafið Bláa í Austurbæ og í Footloose í Borgarleikhúsinu 2006. Matti er aftur fluttur norður með fjölskyldu sína og gerir út frá Dalvík. Rocky Horror er fyrsta sýningin sem Matti tekur þátt í hjá LA.













