Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Pétur Gautur Svavarsson

Starfstitill
Leikmynd
Ferilskrá

PÉTUR GAUTUR SVAVARSSON hannar leikmynd í Rocky Horror
Pétur Gautur Svavarsson útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991. Hann er þekktur málari og hefur stundað þá list um árabil og haldið fjölda sýninga hérlendis og erlendis.  Pétur Gautur stundaði nám í leikmyndahönnun hjá „Statens Teaterskole“ í  Kaupmannahöfn 1991-1992. Frá árinu 1987 hefur Pétur Gautur unnið við leikhús ýmist sem leikmyndahönnuður eða tæknimaður. Sýningar sem hann hefur unnið við eru m.a. Vesalingarnir,  Pétur Gautur,  My Fair Lady, Fiðlarinn á þakinu og Hafið í Þjóðleikhúsinu. Hann hannaði leikmyndir í  La Serva Padroan í Statens Teaterskole, Máfurinn hjá Leikfélagi Hornafjarðar og Karlar óskast í kór fyrir MFA.  Rocky Horror er fyrsta leiksýningin sem Pétur Gautur vinnur fyrir Leikfélag Akureyrar.

petur_gautur_hs.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf