Flýtilyklar
Rannveig Eva Karlsdóttir
- Starfstitill
- Búningar
- Ferilskrá
-
RANNVEIG EVA KARLSDÓTTIR - Hannar búninga í Rocky Horror
Rannveig Eva stundaði nám í Fataiðndeild Iðnaskólans í Reykjavík og lauk námi í Hönnunardeild sama skóla árið 1999. Hún lærði búningahönnun í Wimbledon College of Art í London og útskrifaðist þaðan með BA próf árið 2007. Hún hannaði Carnival búning fyrir sýninguna “Turner and Venice” á Tate Britain safninu í London árið 2003. Rannveig hefur hannað búninga í sýningarnar Svarklædda konan, Fool for Love hjá Silfurtunglinu, Falið Fylgi og Fúlar á móti hjá LA á síðasta leikári. Rannveig var fastráðinn búningahönnuður hjá LA sl. vetur og hannaði búninga fyrir Lilju og Lykilinn að jólunum og 39 þrep.













