Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Sigyn Blöndal

Starfstitill
Sýningastjóri
Netfang
sigyn@leikfelag.is
Ferilskrá
SIGYN BLÖNDAL – er sýningastjóri í Rocky Horror
Sigyn hefur starfað sem æfinga- og sýningastjóri hjá LA frá árinu 2006 ásamt því að aðstoða við hreyfingar og dansa í mörgum leiksýningum LA. Sigyn hóf dansnám fimm ára gömul. Á árunum 1990-2001 var hún við nám í Jazzballettskóla Báru þar sem hún tók í öllum nemendasýningum skólans og fjölmörgum viðburðum sem honum tengdust, bæði sem nemandi og kennari. Sigyn fékk dansaradiplóma JSB árið 2000 og sama ár stundaði hún dansnám í London Studio Centre. Hún varð tvisvar Reykjavíkurmeistari í Freestyle og einu sinni Íslandsmeistari.  Sigyn var dansari í Queen, Rolling Stones og Eurovision sýningum á Broadway og dansaði í sýningum Dansleikhússins árin 2002 og 2003. Hún tók þátt í uppfærslu Borgarleikhússins á Evu Lunu árið 1993 og var dansahöfundur í uppfærslu Kvennaskólans á Kabarett árið 2001. Vorið 2008 samdi hún og stjórnaði dansatriðum í Wake me up sem var sýnt fyrir fullu húsi í Samkomuhúsi LA í margar vikur. Árið 2005 stofnaði  Sigyn sinn eigin dansskóla á Akureyri, Point dansstúdíó þar sem um 500 nemendur stunda dansnám að jafnaði.
sigyn_blondal_hs.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf