Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Steinunn Ketilsdóttir

Starfstitill
Danshöfundur
Ferilskrá

STEINUNN KETILSDÓTTIR - er danshöfundur í Rocky Horror
Steinunn Ketilsdóttir útskrifaðist árið 2005 frá Hunter College í New York með BA próf í listdansi og vinnur sem sjálfstætt starfandi danshöfundur og dansari. Steinunn er annar helmingur „Steinunn and Brian“ en þau hafa unnið saman síðan árið 2007 þegar þau frumsýndu verkið „Crazy in love with MR. PERFECT“, fyrsta verkið í þríleik þeirra um ástina. Verk númer tvö var „Love always, Debbie and Susan“, 2008 og það þriðja „The Butterface“, 2009. Verk þeirra hafa verið tilnefnd til Grímunnar, hlotið verðlaun erlendis og verið sýnd víðsvegar um Evrópu og í New York.
Verk Steinunnar hafa verið sýnd í Dance Theater Workshop og Judson Church á vegum Movement Research og leikhúsinu Dixon Place.  Steinunn hefur dansað fyrir Barböru Mahler, Juliette Mapp og Jessicu Winograd.  Hún hefur tvívegis tekið þátt í Dansleikhús/samkeppni LR og ÍD og hlaut þriðju verðlaun árið 2006 fyrir verkið Elsku Bróðir.  Steinunn er einn stofnenda UglyDuck.Productions sem stendur fyrir 108 Prototype, sýningar fyrir verk í vinnslu.  Hún situr í  stjórn Reykjavík Dance Festival og Félags íslenskra listdansara auk þess sem hún sinnir gestakennslu. Steinunn hlaut Grímuverðlaun í vor sem Danshöfundur ársins og Dansari ársins fyrir verkið „Superhero“ sem frumsýnt var á Reykjavík Dance Festival 2010. Rocky Horror er fyrsta sýningin sem Steinunn vinnur fyrir LA.

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf