Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Þórarinn Blöndal

Starfstitill
Leikmynd
Ferilskrá

ÞÓRARINN BLÖNDAL - Leikmynd
Þórarinn stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík og fór síðan til Rotterdam og stundaði nám við Academie van Beldende Kunsten. Þórarinn hefur haldið margar einkasýningar í gegnum tíðina ásamt því að standa fyrir ýmsum listviðburðum og taka virkan þátt í menningarstarfi á Akureyri. Hann var í stjórn Gilfélagsins um árabil, einn af stofnendum og stjórnarmeðlimum Myndlistarfélagsins og er einn af stofnfélögum Verksmiðjunnar á Hjalteyri og situr í stjórn þess. Þórarinn hefur komið að hönnun ýmissa safna víða um land ásamt því að sjá um uppsetningar sýninga og sýningastjórn. Undanfarin ár hefur hann kennt myndlist við Myndlistaskólann á Akureyri. Þórarinn hefur hannað leikmyndir fyrir leiksýningar eins og Hversdagslegt kraftaverk hjá LA, Brotið hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu, Hungur í Borgarleikhúsinu, Eldað með Elvis sem var samstarfsverkefni LA og Menningarfélagsins Eilífs, Leyndarmál rósanna hjá LA, Saga af Pandabirni sögð af saxófónleikara sem á kærustu í Frankfurt hjá LA og Fúlar á móti hjá LA. Leikárið 2009-2010 vann Þórarinn við leikmyndina í 39 þrep. 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf