Leikfélag Akureyrar - LA

Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar

Þráinn Karlsson

Starfstitill
Leikari
Ferilskrá

ÞRÁINN KARLSSON - Leikari
Þráinn var meðal þeirra leikara sem fyrst fengu fastráðningu þegar LA varð atvinnuleikhús árið 1973. Hann hefur síðan þá farið með mörg hlutverk fyrir leikfélagið, stór og smá. Þar má meðal annarra nefna Sganarelle í Don Juan, Skrifta-Hans í Ævintýri á gönguför, Þórð í Stalín er ekki hér, Bjart í Sjálfstæðu fólki, Matta í Púntilla og Matta, Anton Antonovitsj í Eftirlitsmanninum, hlutverk í My Fair Lady og Edith Piaf, Ezra Pound í Skjaldbakan kemst þangað líka, Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni, Eddie Carbone í Horft af brúnni, karlhlutverkin í ParPari, Fangavörðinn í Leðurblökunni, Charlie Baker í Útlendingnum, Jeeter Lester í Tobacco Road, Póloníus í Hamlet, og Ananías í Gullbrúðkaupi. Undanfarin ár hefur hann vakið athygli í Fullkomnu brúðkaupi, Liltu hryllingsbúðinni og Maríubjöllunni en fyrir það hlutverk hlaut hann tilnefningu til Grímunnar. Hann vakti einnig verðskuldaða athygli fyrir leik sinn í Svörtum ketti og sem smábarnið í Óvitum. Þráinn lék Þránd í Fló á skinni í og á síðasta leikári lék hann Björgvin, lögreglumanninn í Músagildrunni. Þráinn hefur leikstýrt nokkrum vinsælustu sýningum LA, svo sem Ættarmótinu, Fátæku fólki og Blessuðu barnaláni. Þá hefur Þráinn hannað og smíðað ófáar leikmyndirnar. Árið 1974 stofnaði hann Alþýðuleikhúsið ásamt með öðrum og vann með því að nokkrum sýningum svo sem Krummagulli og Skollaleik. Hann starfaði um tíma í Þjóðleikhúsinu og hefur leikið í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi. Þráinn vinnur einnig að myndlist og helgaði sig slíkum störfum veturinn 1995-1996, en þá var hann bæjarlistamaður Akureyrarbæjar. Þráinn lék sl. vetur í Lilju og Lykillinn að jólunum eftir Snæbjörn Ragnarsson.

 

thrainn_karlsso_hs.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf