Leikfélag Akureyrar - LA
Heimasíða LA, Leikfélag Akureyrar
Veturliði Guðnason
- Starfstitill
- Þýðing
- Ferilskrá
- VETURLIÐI GUÐNASON þýddi Rocky Horror
Veturliði Guðnason er fæddur á Ísafirði 1946. Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum Akureyri stundaði hann nám í þýsku og sálfræði við Kölnarháskóla 1966-1974. Hann var hann yfirþýðandi Sjónvarpsins 1974-78 en bjó síðan í Kaupmannahöfn í fjögur ár. Eftir að hann kom aftur heim til Íslands hefur hann verið þýðandi hjá Sjónvarpinu úr þýsku, dönsku og ensku. Veturliði er löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur úr og á þýsku. Hann hefur þýtt fjöldann allan af sjónvarpsmyndum og myndaflokkum, útvarpsleikrit og einnig mörg sviðsverk; bæði leikrit, svo sem Engla í Ameríku, Hvað um Leonardo? og Bláa herbergið fyrir Leikfélag Reykjavíkur, og söngleiki, svo sem Grease, Rocky Horror og Kabarett.
Dagatal
Maí 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | 1 | 2 | 3 | | |
| 6 | 7 | 8 | 9 | | 11 | |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |