Leikfélag Akureyrar - LA

Aukasýning 21. maí!. AUKASÝNING 21. MAÍSÍÐASTA SÝNING Á ÞESSU LEIKÁRI!Leikfélag Akureyrar sýndi 39 þrep í Íslensku óperunni um síðustu helgi. Aðsókn var

auglysing.jpg

39 Þrep í Íslensku óperunni

Aukasýning 21. maí!

AUKASÝNING 21. MAÍ
SÍÐASTA SÝNING Á ÞESSU LEIKÁRI!
Leikfélag Akureyrar sýndi 39 þrep í Íslensku óperunni um síðustu helgi. Aðsókn var gríðarlega góð og vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu þann 21. maí nk.
Sala á þá sýningu er hafin og miðasala er hjá Íslensku óperunni. Síminn er: 511 4200.  Leikstjóri er María Sigurðardóttir en hún leikstýrði einnig hinum vinsælu sýningum SEX Í SVEIT, FLÓ Á SKINNI og FÚLAR Á MÓTI.
   PANTA MIÐA


39 þrep hefur gengið fyrir fullu húsi á Akureyri í vetur og eru gagnrýnendur á einu máli: "Stórkostleg sýning".  Í þessum óborganlega gamanleik  fara 4 leikarar á kostum í 139 hlutverkum.

39 ÞREP byggir á samnefndri kvikmynd Alfred Hitchcock eftir skáldsögu John Buchan. Leikgerðin er eftir Patrick Barlow byggð á hugmynd Simon Corble og Nobby Dimon.
Þar segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur.
39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn Tony verðlaun árið 2008.

Leikarar í sýningunni eru Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Leikmynd hannaði Finnur Arnar Arnarson og búninga Rannveig Eva Karlsdóttir. Halldór Örn Óskarsson hannaði lýsingu og Gunnar Sigurbjörnsson hljóðmynd.

ATHUGIÐ!
Hægt er að kaupa miða  í miðasölu Íslensku óperunnar í síma 511 4200 og á http://www.opera.is/

**** (4 stjörnur) – „leikstjórnarsigur“  „... án efa í baráttusætinu um besta gamanleik ársins“– SÁ Fréttablaðið

**** (4 stjörnur) - ".. ein sú besta afþreying sem hér hefur sést á leiksviði um nokkurt skeið." - JVJ DV

„Ég hef ekki hlegið jafn mikið í leikhúsi í mörg ár“ – SH

„Frammistaða leikaranna er óborganleg“ – SH Mbl.

„...snilldartaktar  Atla og Jóhanns í þessum ótölulega aragrúa hlutverka...“ – ÁÞÁ vikudagur

 

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf