Leikfélag Akureyrar - LA

4 störnu leikhúsveisla. Í þessu ærslafulla leikriti segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar,en

auglysing.jpg

39 Þrep

4 störnu leikhúsveisla

Í þessu ærslafulla leikriti segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar,en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Söguhetjan Hannay er meðal fyrstu hefðarmanna-hetjanna í bókmennta- og kvikmyndasögunni, og má segja að hann hafi, ásamt Sherlock Holmes, rutt brautina fyrir seinni tíma hetjur á borð við James Bond.

39 Þrep er sett upp í samstarfi við VÍS


39 þrep, eða The 39 Steps, er nýlegur gamanleikur eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. 

Það er óhætt að segja að leikgerðin sé ekki öll þar sem hún er séð, en hana skrifaði breski háðfuglinn Patrick Barlow. Í þessum nýstárlega og sprenghlægilega spennu-gamanleik takast fjórir hugrakkir leikarar á við 139 hlutverk, í einhverjum hröðustu, mest spennandi og fyndnustu 100 mínútum sem sést hafa á leiksviði. 39 þrep hlaut hin virtu Olivier verðlaun sem besta gamanleikritið árið 2007 og tvenn Tony verðlaun árið 2008.

Verkið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu þann 8. janúar 2010.

39 Þrep er sett upp í samstarfi við VÍS.

Þýðing
  • Eyvindur Karlsson
Leikstjórn
  • María Sigurðardóttir
Leikmynd
  • Finnur Arnar Arnarson
Lýsing
  • Halldór Örn Óskarsson
Búningar
  • Rannveig Eva Karlsdóttir
Hljóðmynd
Gervahönnun
  • Ragna Fossberg
Hár og förðun
  • Sunna Björk Hreiðarsdóttir og Harpa Birgisdóttir
Leikarar

**** ..." Leikstjórnarsigur Maríu Sigurðardóttur. Henni tekst að draga fram það besta í hverjum og einum og virkja leikgleði sem sést of sjaldan.
Verður án efa í baráttusætinu um besta gamanleikrit ársins 2010 á Íslandi. Sterk leikstjórn og smitandi leikgleði. Vel unnin sýning." - Sigurbjörg Árnadóttir - Fréttablaðið

"Þeim sem erfitt eiga með að brosa þessa dagana er óhætt að benda á að kvöldstund í gamla Samkomuhúsinu á Akureyri svíkur engan." - SH. Mbl.

"Ég held ég hafi ekki hlegið jafn mikið í mörg ár!" - Leikhúsgestur á frumsýningu.

"Einfaldlega leikhús eins og það gerist best" - ÁÞÁ Vikudagur

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf