Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Hjartnæmur heimilistækjasirkus fyrir alla fjölskylduna með Kristjáni Ingimarssyni og Ólafíu Hrönn Jónsdóttur.
Sýningin var frumsýnd á listahátið í Reykjavík 2010 og komust færri að en vildu.
Kristján og Ólafía Hrönn fara á kostum í þessum undursamlega hræringi manns og heimilistækja í Samkomuhúsinu á Akureyri 20. og 21. maí.
Sýningin er samstarfsverkefni CommonNonsense, Þjóðleikhússins og Leikfélags Akureyrar.
Það sem boðið verður uppá:
• Tugþraut í tengiflugi
• Nilfisk sjónhverfingar
• Hrærivélasamdrætti
• Flögrandi forrétti
• Samhæfðan klútadans
Og fleiri töfrandi uppákomur hjá þessu undursamlega sambýlisfólki.
Einstakur húmor, færni og hugmyndaflug hafa verið einkennismerki listafólksins sem kemur að þessu verki, en fjórmenningarnir vinna nú að sinni fyrstu sýningu saman.
„Á morgun skulum við gera eitthvað alveg nýtt“
Hægt er að nálgast myndband með broti úr sýningunni hér
Sýningin var tilnefnd til 2 Grímuverðlauna
Það er fjör í Kassanum. Þeir sem elska trúðleik í hæsta gæðaflokki ættu ekki að missa af þessu. Silja Aðalsteinsdóttir TMM
Ólafía Hrönn fer á sínum alkunnu kostum, engu síður en meistari Kristján Ingimarsson: kómískur dúett í háum gæðaflokki ( Jón Viðar Jónsson, DV)
Leikur með óborganleg tæki og tól…...gömul Nilfisk-ryksuga dubbuð upp til leiksigurs eitt augnablik. (GB. Mbl)
Það er óhætt að mæla með þessu klukkustundarlanga leikverki listafólksins í CommonNonsense sem hrærir saman skemmtilegheitum..... (GB. Mbl)