Leikfélag Akureyrar - LA

á Akureyri. Þann 24.október 1975 kom út hljómplatan Áfram stelpur þar sem íslenskar leik-og söngkonur sungu baráttusöngva kvenna í tilefni

auglysing.jpg

Áfram stelpur

á Akureyri

Þann 24.október 1975 kom út hljómplatan Áfram stelpur þar sem íslenskar leik-og söngkonur sungu baráttusöngva kvenna í tilefni kvennafrídagsins. Þessi plata rataði inn á mörg heimili og greyptist í huga stelpna og stráka, ungra og eldri sem féllu fyrir grípandi lögum og skemmtilegum textum en ekki síður baráttuandandanum, þorinu, viljanum og getunni sem ólgaði undir niðri.

Á þrjátíu og fimm ára afmæli Kvennafrísins í haust fluttu fimm reglulega kvenlegar leik-og söngstelpur plötuna Áfram stelpur í heild sinni á tónleikum í Slippsalnum og vöktu af værum blundi hjúkkuflugfreyjuna, Þyrnirós, Gunnu og Sigga, ánægðu ömmuna á Grund og síðasta sumarblómið. Fyrr um daginn stjórnuðu þær fimmtíu þúsund kvenna fjöldasöng á Arnarhóli, upplifun sem aldrei gleymist.

Vegna fjölda áskoranna verða þessir tónleikar endurteknir en nú norðan heiða, nánar tiltekið í Samkomuhúsinu í samstarfi við Leikfélag Akureyrar laugardaginn 22.janúar 2011 kl 20.
Miðaverð er 1500 krónur og hægt að kaupa miða á miði.is, leikfelag.is, í miðasölu Leikfélags Akureyrar og í Hofi.
Allar stelpur, strákar, kallar og konur innilega velkomin!

Áfram stelpur 2010 eru
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Brynhildur Björnsdóttir
Esther Jökulsdóttir
Margrét Pétursdóttir
og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf