Leikfélag Akureyrar - LA
Magnað dansverk!. Menningarfélagið sýndi Aftursnúið, nýtt íslenskt dansverk í Rýminu, Leikfélagi Akureyrar síðastliðið vor. Sýningin vakti verðskuldaða
Aftursnúið
Magnað dansverk!
Menningarfélagið sýndi Aftursnúið, nýtt íslenskt dansverk í Rýminu, Leikfélagi Akureyrar síðastliðið vor. Sýningin vakti verðskuldaða athygli og góða dóma. Vegna fjölda áskorana verða sýningar á verkinu 11. og 12. september nk. Verkið fylgir tilraunum tveggja einstaklinga til að fóta sig við ókunnar aðstæður og takast á við heiminn eftir að honum hefur verið snúið á hvolf. Inntak verksins eru áföll í lífi fólks og eftirmálar þeirra, nánar tiltekið ferlið sem einstaklingur gengur í gegnum eftir áfall og þær breytingar sem það hefur í för með sér.
Menningarfélagið var stofnað sumarið 2007 og hefur sett á svið tvö dansverk, Hljóðspor og Moment seen og gert tvær dansstuttmyndir í samvinnu við Þóru Hilmarsdóttur. Aftursnúið er þriðja verkefni hópsins, sem er í senn dansverk og stuttmynd. Hópurinn hefur tekið töluverðum breytingum frá upphafi og fengið liðsauka úr öðrum listgreinum.
Að verkinu Aftursnúið koma eftirtaldir listamenn
Dans og danssmíðar: Ásgeir Helgi Magnússon og Inga Maren Rúnarsdóttir
Tónsmíði: Lydía Grétarsdóttir
Búninga- og sviðsmyndarhönnun og videoverk: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Ljósahönnun: Egill Ingibergsson
Dramatúrg: William Collins
- Tónlist
-
- Dansarar
-
- Ásgeir Helgi Magnússon
- Inga Maren Rúnarsdóttir
- Dramatúrgía
-
- Leikmynd og búningar
-
- Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Dagatal
Febrúar 2012
| S | M | Þ | M | F | F | L |
| | 1 | 2 | 3 | 4 |
| 5 | 6 | | | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
| 27 | | | |