Leikfélag Akureyrar
Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Ein af skemmtilegustu fjölskyldusýningum landsins. Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks skartar sjálfum Sveppa í aðalhlutverki.
Síðustu sýningar laugardaginn 24.10.2010 klukkan 13:00 og 16:00
Með Sveppa á sviðinu er Orri Huginn Ágústsson sem er áhorfendum góðkunnugur úr sjónvarpsþáttunum Pressan.
Sýningin byggir á barnaplötu Gísla Rúnars Algjör sveppur frá árinu 1978 sem er löngu orðin sígild.
Sveppi fer á kostum í aðalhlutverkinu og Orri Huginn bregður sér í allra kvikinda líki á meðan sýningunni stendur.
Leikstjóri er Felix Bergsson og tónlistarstjóri er Jón Ólafsson.