Djúpið
Einleikur eftir Jón Atla Jónasson
Magnaður einleikur með Ingvari E. Sigurðssyni!
SÝNDUR AFTUR VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA!
Aðeins ein sýning sunnudaginn 15. maí klukkan 20:00
Ekki missa af ótrúlegri leikhúsupplifun!
Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum.
Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Verkið var heimsfrumsýnt í Oran Mor leikhúsinu í Glasgow í apríl síðastliðnum og var einn þekktasti leikari Skotlands, Liam Brennan,í aðalhlutverkinu. Viðtökur gagnrýnenda voru frábærar en Djúpið fékk fjórar stjörnur í The Scotsman. Leikhús um alla Evrópu hafa tryggt sér sýningarréttinn á þessu magnaða verki
Jóns Atla Jónassonar. Stórleikarinn
Ingvar E. Sigurðsson fer hér með aðalhlutverkið, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli, höfundur verksins leikstýrir.
- Leikstjórn
-
- Leikmynd
-
- Lýsing
-
- Leikari
-
"Það er langt síðan ég hef staðið upp jafn djúpt snortinn eftir sýningu á nýju íslensku leikriti."
JVJ, DV
"... feikivel flutt og áhrifamikið."
PBB, Fréttablaðið