Hafnarstræti 57
600 Akureyri
SÝNT Í SAMKOMUHÚSINU!
SÍÐUSTU SÝNINGAR!!!
FYNDIÐ - FJÖRUGT - LEIKHÚSGALDUR!
Farsæll farsi er gamanleikur eins og þeir gerast bestir. Framhjáhald, feluleikur, misskilningur og allrahanda ólíkindatól. Öll hlutverkin eru leikin af tveimur leikurum sem eykur enn á spennuna.
Herbert skrifaði metsölubókina „Farsælt hjónaband“, en er hjónaband hans sjálfs eins fullkomið og bókin gefur til kynna? Skyldi spjallþáttastjórnandinn Ellý Matt koma upp um „hneyksli aldarinnar“, eða kafnar hún inni í fataskáp áður en það tekst? Hvað er þingmaður Miðaldra grænna að gera í næsta herbergi? Verður þetta á endanum farsæll farsi, eða harmrænt tímamótaverk í anda Ingmar Bergmans?
Höfundar: Philip LaZebnik og Kingsley
Leikstjóri: María Sigurðardóttir
Þýðing og staðfærsla: Karl Ágúst Úlfsson
Leikmynd og búningar: Axel Hallkell Jóhannesson
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson
Hljóðmynd: Gunnar Sigurbjörnsson
Tónlist: Arnar Tryggvason
Gervi: Ragna Fossberg
Leikarar: Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson.
"Það þarf ekki að fjölyrða um að leikararnir þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson standa sig afbragðs vel.
Sýningin býður upp á ótrúlegar skiptingar og skemmtilegar uppákomur. Það er í raun með ólíkindum að hægt sé keyra verkið áfram af hraða og öryggi með leikarana í tveimur hlutverkum samtímis, á fullri ferð í það þriðja. Skemmtileg sýning sem auðvelt er að mæla með." - ÁÞÁ Vikudagur