Leikfélag Akureyrar - LA

Sýningar á Akureyri um páskana. Sýningin Fúlar á móti var frumsýnd í febrúar 2009 á Akureyri og gekk fyrir fullu húsi þar. Sýningin var ein

auglysing.jpg

Fúlar á móti

Sýningar á Akureyri um páskana

Sýningin Fúlar á móti var frumsýnd í febrúar 2009 á Akureyri og gekk fyrir fullu húsi þar. Sýningin var ein vinsælasta sýning á landinu um vorið þegar hún var sýnd í Íslensku óperunni í Reykjavík. Nú eru þær stöllur væntanlegar til Akureyrar að nýju og munu skemmta Norðlendingum um páskana. Verkið er breskt að uppruna - Grumpy Old Women Live! - og það eru þær Edda Björgvins, Helga Braga og Björk Jakobs sem eru Fúlar á móti í íslenskri útfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. 

Þær Edda, Helga Braga og Björk skauta af sinni alkunnu snilld í gegnum síðara skeiðið og gera óspart grín að sjálfum sér og öðrum. Nú fá karlmenn loksins að vita hvers vegna eiginkonur, systur og mæður þeirra eru eins og þær eru. Hér gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í hugarheim Fúlla á móti.

Þetta er í fyrsta skipti sem þessar vinsælustu uppistandsleikkonur þjóðarinnar stíga saman á stokk. 

Hvað gerist þegar þessar fögru en viðsjárverðu dömur tipla saman um sviðið? Kviknar í þeim? Bíta þær áhorfendur?

Sýningar á Akureyri um páskana 2010

Leikstjórn
Leikmynd
  • Þórarinn Blöndal
Lýsing
Búningar
Hljóðmynd
Sviðshreyfingar
  • Sigyn Blöndal
Leikarar

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf