Leikfélag Akureyrar - LA

Gestasýning LMA. AUKASÝNING 4. MAÍ KL. 21.30 Grænjaxlar„Hvar á hún heima þessi kreppa?“ Í Grænjöxlum fylgjumst við með fjórum saklausum krökkum í leit

auglysing.jpg

Grænjaxlar

Gestasýning LMA

AUKASÝNING 4. MAÍ KL. 21.30

Grænjaxlar
„Hvar á hún heima þessi kreppa?“
Í Grænjöxlum fylgjumst við með fjórum saklausum krökkum í leit að kreppunni og tilgangi lífsins. Á leiðinni mæta þau allskyns hindrunum hins risavaxna og óskiljanlega þjóðfélags, lenda í óþægilega kunnuglegum aðstæðum og á vegi þeirra verða margir furðulegir karakterar sem virðast síst af öllu vilja rétta þeim hjálparhönd.
Þessi litríka þroskasaga varpar ljósi á samtíma okkar, hún er full af hnífbeittri ádeilu og súrum húmor sem allir geta hlegið að. 

Sýningin er framleiðsla leikfélags Menntaskólans á Akureyri og er sett upp og sýnd í samstarfi við Leikfélag Akureyrar


Leikfélag Menntaskólans á Akureyri (LMA) er eitt virkasta félag skólans og fagnar í ár aldarafmæli sínu.  Árlega setur LMA upp metnaðarfulla sýningu og að þessu sinni urðu Grænjaxlar fyrir valinu.
Grænjaxlar er íslenskur söngleikur frá gullárinu 1977. Höfundur er Pétur Gunnarsson en verkið hefur verið lítillega staðfært af leikstjóra og leikhópi.
Tónlistin í verkinu er eftir Spilverk Þjóðanna og hefur verið útfærð af Þorvaldi Erni Davíðssyni, tónlistarstjóra. Hljómsveit LMA tekur virkan þátt í sýningunni, hún er skipuð nemendum úr MA og Tónlistarskóla Akureyrar.
Leikfélag Akureyrar tók LMA opnum örmum í haust og hefur samstarfið gengið með prýði. Fyrir utan leikstjóra og leikmyndahönnuð sjá nemendur alfarið um uppsetninguna og hafa þeir allir fengið að njóta sín undir ómetanlegri leiðsögn atvinnufólks.

Sýningin er framleiðsla leikfélags Menntaskólans á Akureyri og er sett upp og sýnd í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.


Leikstjórn
Leikmynd
  • R. Mekkín Ragnarsdóttir
Aðstoðarleikstjóri
  • Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónlistarstjórn
  • Þorvaldur Örn Davíðsson

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf