Leikfélag Akureyrar - LA

Krassandi ævintýraleikrit. Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar

auglysing.jpg

Gulleyjan

Krassandi ævintýraleikrit

Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar. 

Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.


Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar. 

Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson.

Lífið á sveitakránni tekur heldur betur stakkaskiptum þegar gamall sjóræningi gefur þar upp öndina og skilur eftir sig fjársjóðskort. Jim, sonur kráareigans, veit ekki fyrr til en hann er kominn langt suður í höf með skuggalegri áhöfn á seglskipinu Hispanjólu. Skipskokkurinn Langi-Jón Silvur er ekki allur þar sem hann er séður og leitin að fjársjóðnum verður fjörugri og hættulegri en nokkurn gat grunað. Þetta er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið. 

Gulleyjan eftir Robert Louis Stevenson er fyrsta sjóræningjasagan og sú frægasta og sagan sem öll sjóræningjaævintýri á bókum, í leikritum og kvikmyndum byggja á.

Sigurður Sigurjónsson snýr nú aftur til Akureyrar en síðasta sýningin sem hann vann hjá LA var ÓVITAR sem sló rækilega í gegn og kætti leikhúsgesti á öllum aldri.

Glæsilegur hópur listrænna stjórnenda vinnur að sýningunni: Leikstjórinn Sigurður Sigurjónsson, Snorri Freyr Hilmarsson sem hannar leikmynd, Agnieszka Baranowska og Júlíanna Lára Steingrímsdóttir hanna búningana, Björn Bergsteinn Guðmundsson hannar lýsingu  og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hefur hér enn sannað snilld sína með frábærri tónlist.  

Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 5 ára.

 

Höfundur
Leikmynd
Lýsing
Búningar
  • Júlíanna Lára Steingrímsdóttir og Agnieszka Baranowska
Tónlist
Sviðshreyfingar
  • Katrín Ingvadóttir
Leikari

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122232425
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf