Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Gestasýning frá Borgarleikhúsinu.
Áhorfendur veltust um af hlátri með þeim félögum Erni Árna, Sigga Sigurjóns og Karli Ágústi, en sýningin var sýnd yfir hundrað sinnum fyrir troðfullu húsi í Borgarleikhúsinu síðasta leikár.
Sjá trailer: http://www.facebook.com/home.php?#!/video/video.php?v=417000610008
Einkaspæjararnir óborganlegu Harry og Heimir flækjast inn í dularfullt hvarf eiginmanns hinnar undurfögru Díönu Klein. Þeir fara alla leið til Transylvaníu og þurfa að takast á við illmennið og söngleikjanördinn Doktor Frank N Steingrímsson. En þeir þurfa líka að kljást við skrímslið Rúrik og ekki síður að bera fram nafn þorpsins Trawitzenfikopfendorf. Já, Trawitzenfikopfendorf. En ástin lætur á sér kræla og Harry gefur Díönu auga... innpakkað ... og Heimir spögulerar, þó hann sé með minnsta heila í Heimi.
Harry og Heimir nutu fádæma vinsælda sem framhaldsþættir í útvarpi á árunum 1988-1992. Leikgerðin var frumsýnd í fyrra og sló rækilega í gegn.
Höfundar og flytjendur: Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason og Karl Ágúst Úlfsson
Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Kristín Eysteinsdóttir
Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson
Hljóðmynd: Ólafur Örn Thoroddsen
Gervi: Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Sjá trailer hér
„Þvílík snilld og þvílík skemmtun.“ SA TMM
„Bráðfyndin, hröð og skemmtileg sýning sem á örugglega eftir að höfða til margra“ IÞ Mbl.
"Leiksýningin Harry og Heimir er frábært, í einu orði sagt."
Helgi Snær Sigurðsson, Morgunblaðið
* * * * (4 stjörnur) , Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið