Leikfélag Akureyrar - LA

Sýnt á Akureyri 22. og 23. feb.. Hvað Ef? Skemmtifræðsla er uppistand fyrir unglinga, foreldra og kennara um mörg þau málefni og freistingar sem ungt fólk

auglysing.jpg

Hvað ef

Sýnt á Akureyri 22. og 23. feb.

Hvað Ef? Skemmtifræðsla er uppistand fyrir unglinga, foreldra og kennara um mörg þau málefni og freistingar sem ungt fólk stendur frammi fyrir um það leyti sem það breytist úr börnum í fullorðið fólk. Hvað Ef? fjallar um viðkvæm mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál á skemmtilegan og nýstárlegan hátt.

Verkið hefur hlotið einmuna lof unglinga, foreldra, kennara og þeirra sem hafa staðið í forvörnum og fræðslu um lengri eða skemmri tíð. Með húmorinn og einlægnina að vopni einsetjum við okkur að opna umræðuna um raunveruleika ungmenna á Íslandi. Sýningin er gagnvirk. Við erum með flotta heimasíðu þar sem fólk getur fengið allar nánari upplýsingar og sent okkur póst sem við svörum alltaf.

 

Nú hefur Íslandsbanki  á Akureyri ákveðið að bjóða 9. og 10. bekkjum grunnskóla Akureyrar og nærsveita að koma og sjá þessa sýningu í samstarfi við Þjóðleikhús, Leikfélag Akureyrar og 540 Gólf leikhús 22. og 23. febrúar. Sýningar verða á skólatíma.

Einnig hefur borist fjöldi fyrirspurna um hvort ekki sé hægt að koma á sýningu með foreldrum og ættingjum utan skólatíma. Til þess að mæta þessari þörf verða sýningar kl. 20.00 báða dagana og geta foreldar eða félög haft samband á gus@mmedia.is og fengið frekari upplýsingar.

 

 

Leikstjórn
  • Gunnar Sigurðsson
Leikarar
  • Ólöf Jara Skagfjörð
  • Ævar Þór Benediktsson
  • Guðmundur Ingi Þorvaldsson

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf