Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Leikfélag Akureyrar kynnir í samstarfi við veitingahúsið Greifann:
Uppistandandi gleðileiksýning í Samkomuhúsinu 15. apríl nk.
Nú býðst Akureyringum og nærsveitungum að eiga þægilega kvöldstund með Pétri Jóhanni í hinu vinalega Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar.
Uppistandandi gleðileiksýning í Samkomuhúsinu 15. apríl nk.
Nú býðst Akureyringum og nærsveitungum að eiga þægilega kvöldstund með Pétri Jóhanni í hinu vinalega Samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar. Pétur Jóhann verður með uppistandandi gleðileiksýninguna „Í sannleika sagt“. Þarna er á ferðinni upplýsandi uppistand með gleði og gaman að leiðarljósi. Það verður því enginn, sem hefur gaman af gríni, glensi og hlátri, svikinn af þessari kvöldstund.
Það borgar sig að panta miða sem fyrst. Miðasala LA er á www.leikfelag.is, http://www.midi.is/ og
í síma 450 1000.
Sýningin er sett upp í samstarfi við veitingahúsið Greifann.