Leikfélag Akureyrar - LA

Sýning fyrir alla fjölskylduna. Íslenski dansflokkurinn hefur vakið verðskuldaða athygli um víða veröld á undanförnum árum og hér heima hlotið fjölmargar

auglysing.jpg

íD Danssýning

Sýning fyrir alla fjölskylduna

Íslenski dansflokkurinn hefur vakið verðskuldaða athygli um víða veröld á undanförnum árum og hér heima hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlauna undanfarin ár.

Dansflokkurinn heimsækir nú Akureyri með þrjú mögnuð dansverk og gefa þau góða mynd af þeirri fjölbreytni sem einkennir flokkinn.
Sýningarnar verða í Samkomuhúsinu 30. okt. kl. 20.00 og 31. okt. kl. 14.00



Skekkja eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur er einfalt, tilfinningaþrungið og líkamlegt verk sem snertir við áhorfandanum. Dansarar eru: Cameron Corbett og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, en Lovísa var tilnefnd til Grímunnar 2009 sem besti dansarinn fyrir þetta verk.

 Svanurinn er fallegur og rómantískur dúett eftir Láru Stefánsdóttur, einn af okkar reyndustu dansahöfundum. Dansarar eru Emelía Benedikta Gísladóttir og Steve Lorenz.

Í Kvart dansa dansararnir fyrir hvern annan líkt og hipp-hopparar á götum stórborga eða ættbálkar í Afríku gera. Við sjáum kraftmikinn og fagran dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið með Sigurrós og Múm. Höfundur Kvart er Norðmaðurinn Jo Strömgren. Dansarar í Kvart eru: Aðalheiður Halldórsdóttir, Cameron Corbett, Emelía Benedikta Gísladóttir, Hannes Egilsson, Katrín Á. Johnson, Katrín Ingvadóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Steve Lorenz.


Sýningarnar er í senn kraftmiklar og við hæfi allrar fjölskyldunnar. Viðburður sem enginn dans- eða leikhúsunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.

Dansarar
  • Aðalheiður Halldórsdóttir
  • Cameron Corbett
  • Emilía Benedikta Gísladóttir
  • Hannes Egilsson
  • Katrín Á. Johnson
  • Lovísa Ósk Gunnarsdóttir
  • Steve Lorenz
Danshöfundar
  • Sveinbjörg Þórhallsdóttir
  • Lára Stefánsdóttir
  • Jo Strömgren

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf