Leikárið 2011-2012 er fjölbreytt og spennandi!
Áhersla er lögð á fjölskyldu og barnasýningar, ásamt vönduðum sýningum sem bæði skemmta og hreyfa við leikhúsgestum.
Fjalla Eyvindur – mögnuð ástarsaga. Gestasýning frá leikhópnum Aldrei óstelandi. Sýnt í Rýminu 23. og 24. september.
Nýdönsk Í nánd – Sáldrandi brjáli! Nýdönsk mætir áhorfendum á nýjan hátt í návígi leikhússins. Gestasýning frá Borgarleikhúsinu. Sýnt í Samkomuhúsinu helgina 29.9-1.10. Aðeins þessa einu helgi. (Ekki í áskriftarkortum)
Svarta kómedían– órafmagnaður gamanleikur sem kemur á óvart. Frumsýndur í Samkomuhúsinu 14. október.
Íslenski fjárhundurinn – saga þjóðar. Sagnfræðilegur harmleikur í hljómsveitarbúningi Hunds í óskilum og leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Frumsýning í Samkomuhúsinu 28. október.
Ótuktin – Einstakt og hrífandi verk um mál sem snertir okkur öll. Einleikur með tónlist. Gestasýnining í Ketilhúsinu 16. nóvember.
Saknað –Nýtt verk eftir Jón Gunnar. Samstarfsverkefni Silfurtunglsins og LA. Frumsýnt í Rýminu 18. nóvember.
Gyllti drekinn – Magnað verðlaunaverk eftir einn vinsælasta höfund Þýskalands í dag. Gestasýning frá Borgarleikhúsinu í Samkomuhúsinu 7. og 8. janúar 2012.
Gulleyjan – Nýr íslenskur söngleikur eftir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson með tónlist eftir Þorvald Bjarna. Drepfyndin sýning sem er tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Frumsýnd í Samkomuhúsinu 20. janúar.
Lífsins karnival –Garðar Thór Cortes og Ingveldur Ýr Jónsdóttir. Leikhúsi og söng tvinnað saman í skemmtilegri sýningu. Sýningin var sett upp haustið 2010 í Gamla bíói í samstarfi við Íslensku óperuna. Sýnt í Samkomuhúsinu 15. og 16. febrúar.
Afinn – Óumflýjanlegt framhald Pabbans. Hlýlegur og fyndinn einleikur. Gestasýning frá Borgarleikhúsinu og Thorsson Productions, í Samkomuhúsinu frá 2. mars.
Súldarsker – Nýtt spennandi leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur. Ærslafull, tragíkómísk ráðgáta. Gestasýning frá Soðið svið. Sýnt í Samkomuhúsinu 16.-18. mars.
Djúpið – Hinn magnaði einleikur Jóns Atla Jónassonar leikinn af Ingvari E. Sigurðssyni. Kemur aftur norður vegna fjölda áskorana. Sýningartími birtur síðar.
Í sannleika sagt – Stórskemmtilegt uppistand með Pétri Jóhanni kemur aftur til okkar á nýju ári.
LISTAFLAKK - Samstarf LA, Silfurtunglsins, Tónlistarskólans og fleiri. Leiklestrar þar sem saga listarinnar er rakin í gegnum tónlist, leiklist og myndlist. Fjögur kvöld, í fyrsta sinn þann 25. október í Hömrum, Hofi.
Leikfélagið Adrenalín – Akureyrarkirkja í samstarfi við Grunnskóla Akureyrar og LA sýnir brot úr söngleiknum Jesus Christ Superstar á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar 4. mars í Samkomuhúsinu.
Samstarf LA og LMA – LMA sýnir í Rýminu seinni part vetrar.
Ævintýramorgnar í leikhúsinu – Ungu fólki á aldrinum 3-8 ára býðst að koma í ævintýraleit með listamönnum LA á laugardagsmorgnum í vetur. Nánar auglýst á heimasíðunni þegar nær dregur.
Haustönn Leiklistarskóla LA hófst 5. september og stendur fram í nóvember.