Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Leiklestraröð LA var mjög vinsæl síðasta vetur og því munum við halda leiklestrunum áfram í vetur. Þeir verða með svipuðu sniði, fyrsta miðvikudagskvöld í hverjum mánuði.
Leiklestrarnir hafa mismunandi yfirskrift eða þema og verða ýmist leiklesin heil verk eða kaflar úr verkum. Nemendur og kennarar í Tónlistarskólanum á Akureyri munu koma fram og leika tónlist í anda verkanna sem leiklesin verða.
Þemu síðasta leikárs voru m.a.: Íslensk verk, Einleikir, Írsk leikrit, Spænsk leikrit og fleiri.
Í vetur munum við einnig leiklesa nýtt ósýnt verk eftir ungt efnilegt leikskáld.
Við hvetjum áhugasama til að koma hugmyndum að óskaverkunum sínum til okkar á netfangið: midasala@leikfelag.is og merkja: Leiklestur.
Miðaverði verður haldið í lágmarki og fólk 67 ára og eldra fær ókeypis inn!