Leikfélag Akureyrar - LA

Ávaxtakarfan. Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu með tónlist eftir Þorvald Bjarna verður frumsýnd í Rýminu þann 16. apríl. Að sýningunni stendur elsti

auglysing.jpg

Leiklistarskóli LA

Ávaxtakarfan

Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu með tónlist eftir Þorvald Bjarna verður frumsýnd í Rýminu þann 16. apríl. Að sýningunni stendur elsti hópurinn úr Leiklistarskóla LA.

Ávaxtakarfan fjallar um viðkvæmt efni, einelti og fordóma. Leikritið gerist í ávaxtakörfu þar sem allir eru kúgaðir af Imma ananas. Maja jarðarber er minnst og verður fórnarlamb eineltis. En þegar gulrót kemur í ávaxtakörfuna tekur hún við hlutverki Maju sem bitbein og verður fyrir barðinu á fordómum þar sem hún er grænmeti og því annarrar ættar en ávextirnir. Smám saman opnast augu ávaxtanna fyrir því að það er ekki útlitið sem skiptir máli heldur innrætið og allt endar vel að lokum.

 


Annar hópur Leiklistarskólans mun sýna söngverkið Líf og friður á Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju í byrjun maí og einnig munu yngri hópar vera með opna tíma á sviði LA í lok annarinnar.

Vorönn Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hófst í janúar.  Skólinn, sem ætlaður er fólki á aldrinum 8-15 ára, hóf starfsemi vorið 2009 með tveimur 4ra vikna námskeiðum. Það var svo um haustið sama ár sem námið var lengt og gert ítarlegra. Á vorönn 2010 stunduðu rúmlega 70 ungmenni nám við skólann,  í haust voru nemendurnir 65 sem og nú á vorönn. 

Skólinn er í stöðugri þróun og námsskráin í sífelldri endurskoðun.  Nú stendur hver önn í 12 vikur og kennt er einu sinni í viku, 90 mínútur í senn. 

Kennarar við Leiklistarskólann á vorönn eru Berglind Jónsdóttir og Ásta Magnúsdóttir.

Námið nú á vorönn hefur verið enn fjölbreyttara, komið víða við í heimi leiklistarinnar, og námið tengt starfsemi Leikfélags Akureyrar enn meira. Eins og venjulega mun önninni ljúka með sýningum og opnum tímum á leiksviðum LA.

Haustönninni lauk í lok nóvember. Nemendur höfðu unnið í nokkrum 10 nemenda hópum og var nemendum skipt eftir reynslu, í þrjá hópa. Einn hópurinn hélt opinn tíma fyrir ættingja og vini, annar hópurinn sýndi í lokaverkefni sínu ýmsa leiki frá því í gamla daga og fór með limrur, sá hópur sýndi á Hlíð, við mikinn fögnuð íbúanna, og hafði svo aðra sýningu í Samkomuhúsinu. Þriðji hópurinn æfði síðan og sýndi leikritið Gegnum holt og hæðir í Rýminu, sýningar voru fyrir almenning og var góð aðsókn að þeim.

 

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf