Leikfélag Akureyrar - LA

Byggt á kvikmyndinni Lilya 4 ever. Lilja er 16 ára stúlka sem býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flytur til Bandaríkjanna. Lilja

auglysing.jpg

Lilja

Byggt á kvikmyndinni Lilya 4 ever

Lilja er 16 ára stúlka sem býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flytur til Bandaríkjanna. Lilja býr til sitt eigið heimili með vinkonu sinni Natösju og 12 ára gömlum dreng, Volodja. Á meðan hún sér fyrir heimilinu með vændi dreymir þau öll um betra líf í "Vestrinu".

Er draumalífið fegurðin ein, eða er draumurinn helvíti á jörð? Þetta er saga um börn, fátækt, vændi, ást og svik. Þetta er átakanleg saga um gamaldags þrældóm í nútímasamfélagi.

Jón Gunnar Þórðarson höfundur Lilju byggir leikritið lauslega á kvikmynd Lukas Moodyssons. Jón Gunnar vann leikritið meðan hann var við nám í Drama Centre í London.  Lilja var frumsýnd í The Contact Theatre í Manchester 2008 í leikstjórn Jóns Gunnars. Sýningin fékk mjög góða gagnrýni og m.a. 5 stjörnur í Manchester Evening News.

Sýningin er sett upp í samstarfi við Bílaleigu Akureyrar og KEA hótel.

Leikstjórn
  • Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd
  • Dýri Bjarnar Hreiðarsson
  • Bjarki Árnason
  • Sunna Björk Hreiðarsdóttir
Lýsing
Búningar
  • Rannveig Eva Karlsdóttir
Hljóðmynd
Leikarar

“...hér var fagfólk að verki sem vissi hvað það vildi með þessari sýningu og hvernig ætti að koma verkinu og boðskapnum á framfæri." ÁÞÁ

“Og enn einu sinni hefur leikhúsinu tekist að fá til sín hóp ungra leikara sem virðast því sem næst fullskapaðir til allra þeirra átaka sem erfið stykki á borð við Lilju krefjast.” ÁÞÁ

“Ólafur Ingi Sigurðsson kemur sterkur inn og gefur sýningunni mjög raunverulegan og dýpri blæ” ÁÞÁ

“Atli Þór Albertsson stóð sig með miklum ágætum í hlutverkum sínum...” ÁÞÁ

“Leikmynd, ljós og hljóð eru kapítuli útaf fyrir sig og nálgast hreina snilld hvernig hægt er að leiða verkið á milli ólíkra kringumstæðna að því er virðist algjörlega áreynslulaust.” ÁÞÁ

 

”Kvöldstund með Lilju er góð, vegna þess að hún er upplýsandi. Stundin er ekki beinlínis þægileg en hún er hverjum manni holl vegna þess að hægt er að trúa því að hún sé sönn...” SH Mbl.

”Listamenn hitta naglann stundum óþægilega nákvæmlega á höfuðið. Jón Gunnar Þórðarson er einn þeirra...” SH Mbl.

”Eitt er að sjá í sjónvarpi eða kvikmyndahúsi, annað að skynja kvalir lifandi fólks í sama herbergi, og illsku annarra, jafnvel þótt það sé að leika.” SH Mbl.

 

”Áhrifaríkt verk með sterkan boðskap.” SLG Rúvak

”Leikmyndin gekk algerlega upp, lýsingin var góð og búningar Rannveigar Evu voru sannfærandi...” SLG Rúvak

”Þráinn kemur sífellt á óvart, verkar mjög sannfærandi sem illmennið í verkinu...” SLG Rúvak


Dagatal

 September 2010 
SMÞMFFL
 1234
5678910
11
11.september:
Aftursnúið danssýning Nánar
12
12.september:
Aftursnúið danssýning Nánar
13141516
17
17.september:
Rocky Horror Nánar
18
18.september:
Rocky Horror Nánar
19
19.september:
Rocky Horror Nánar
20212223
24
24.september:
Algjör Sveppi dagur í lífi stráks Nánar
Rocky Horror Nánar
25
25.september:
Algjör Sveppi dagur í lífi stráks Nánar
Algjör Sveppi dagur í lífi stráks Nánar
Rocky Horror Nánar
Rocky Horror Nánar
2627282930 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf