Leikfélag Akureyrar - LA

Gestasýning. Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og viljum ekki vita af en er beint fyrir utan dyrnar okkar. Hversu langt erum

auglysing.jpg

Munaðarlaus

Gestasýning

Munaðarlaus er verk sem rannsakar heim sem fæst okkar þekkja og viljum ekki vita af en er beint fyrir utan dyrnar okkar. Hversu langt erum tilbúin að ganga til að vernda okkar nánustu? Hvernig getur samviskan haldist hrein þegar allir sveigja réttlætið að eigin þörfum? Danni og Helena eru búin að redda pössun, kæla vínið, kveikja á kertum og eru sest við kvöldverðarborðið. Allt stefnir í fullkomna kvöldstund þegar Ívar, bróðir Helenu, mætir á svæðið. Útataður í blóði.

Leikhópurinn Munaðarleysingjar frumsýndi þetta nýja verk eftir Dennis Kelly, eitt heitasta leikskáld Bretlandseyja, 8. janúar s.l. í sal Norræna hússins. Verkið heitir Orphans en á íslensku nefnist það Munaðarlaus. Leikstjóri sýningarinnar er Vignir Rafn Valþórsson sem jafnframt þýðir verkið. Leikhópurinn samanstendur af ungum leikurum, Hannesi Óla Ágústssyni, Stefáni Benedikt Vilhelmssyni og Tinnu Lind Gunnarsdóttur,  sem  ákváðu að fjárfesta í réttinum á þessu vinsæla verki og setja það upp sjálf - en hópurinn hefur enga styrki hlotið fyrir uppsetningunni.

Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir Dennis Kelly er frumsýnt á Íslandi en leikrit hans hafa verið sýnd um gervalla Evrópu og Norður Ameríku og hann var nýlega valinn Besta Erlenda Leikskáldið af þýska leiklistartímaritinu Theatre Heute fyrir verk sitt Taking Care of Baby. Munaðarlaus, eða Orphans, var frumsýnt á Edinborgar-hátíðinni nú í sumar við frábærar undirtektir. Þar hlaut verkið Fringe First verðlaunin og Herald Angel verðlaun hátiðarinnar. Það var síðan frumsýnt í Birmingham Repertory Theatre nú í september og í Soho Theatre í London þann 8. október. Verkið fékk m.a. 5 stjörnur hjá Time Out og mjög góða dóma í öllum helstu fjölmiðlum Bretlands.

 

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf