Leikfélag Akureyrar - LA

Vorsýning 2010. Vorsýning Point dansstúdíós verður haldin í Samkomuhúsinu á Akureyri 8. og 9. maí n.k. Að vanda verður ekkert til sparað til þess að

auglysing.jpg

Point Dansstúdíó

Vorsýning 2010

Vorsýning Point dansstúdíós verður haldin í Samkomuhúsinu á Akureyri 8. og 9. maí n.k. Að vanda verður ekkert til sparað til þess að gera sýninguna sem glæsilegasta. Fullkominn hljóð- og ljósabúnaður er notaður ásamt því að nemendur eru búnir að vera að æfa skemmtileg atriði í allan vetur. Nemendur fara í búninga og tilheyrandi gervi til þess að gera atriðin og sýninguna sem flottasta.  Þemað að þessu sinni er ,,tímavél” og verður farið aftur í tímann allt til 1920. Nemendur og kennarar skólans eru búnir að rifja upp helstu tónlist og dansspor fyrri tíma og útkoman er glæsileg danssýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Nemendurnir skína á sviðinu og njóta þess að dansa við tónlist eins og Vanilla Ice, Bonnie Tyler, Elvis, Backstreet boys, Kool and the gang og Andrew sisters svo eitthvað sé nefnt.

Miðaverð er 1500 fyrir fullorðna en 750 fyrir 12 ára og yngri. Ef foreldri þarf að kaupa miða á báðar sýningar þá er veittur 50% afsláttur á aðra sýninguna. Til þess að nýta þennan afslátt þarf að hafa samband við miðasölu, ekki er hægt að bóka afsláttarpantanir í gegnum heimasíðuna. Miðasala LA er opin alla virka daga milli 13:00 og 17:00.


Nemendahóp skólans er skipt í tvennt og sýnir hvor hópur annan daginn þrisvar sinnum, þannig að um tvær mismunandi sýningar er að ræða.

Laugardagur 8. maí:
Mömmurnar: kennari Ásta Bærings
4-5 ára-1: kennari: Guðrún Huld Gunnarsdóttir (10:30 hópurinn)
A1: kennari: Þórdís Gísladóttir
A3: kennari: Magndís Blöndahl
B2: kennari: Karen Jóhannsdóttir
B4: kennari: Guðrún Huld Gunnarsdóttir
B6: kennari: Móheiður Guðmundsdóttir
C1- yngri: kennari: Karen Jóhannsdóttir
C4: kennari: Katrín Mist Haraldsdóttir
D2: kennari: Ásta Bærings
D1: kennari: Ásta Bærings og Sigyn Blöndal

Sunnudagur 9. maí
Mömmurnar: kennari: Ásta Bærings
4-5 ára-2: kennari: Guðrún Huld Gunnarsdóttir (9:30 hópurinn)
A2: kennari: Arna Sif Þorgeirsdóttir
B1: kennari: Arna Sif Þorgeirsdóttir
B3: kennari: Elín Inga Bragadóttir
B5: kennari: Katrín Mist Haraldsdóttir
C1-eldri: kennari: Katrín Mist Haraldsdóttir
C2: kennari: Elín Inga Bragadóttir
C3: kennari: Þórdís Gísladóttir
D3: kennari: Ásta Bærings
D1: kennarar: Ásta Bærings og Sigyn Blöndal

Sýningarnar verða kl: 13:00, 14:30 og 16:00 báða dagana og tekur sýningin um klukkustund.

Miðaverð er 1500 fyrir fullorðna en 750 fyrir 12 ára og yngri. Ef foreldri þarf að kaupa miða á báðar sýningar þá er veittur 50% afsláttur á aðra sýninguna. Til þess að nýta þennan afslátt þarf að hafa samband við miðasölu, ekki er hægt að bóka afsláttarpantanir í gegnum heimasíðuna. Miðasala LA er opin alla virka daga milli 13:00 og 17:00.


Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf