Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Rocky Horror kveður á föstudaginn.
Síðasta sýning er föstudaginn 4. mars klukkan 20:00. Um 15.000 gestir hafa séð sýninguna nú þegar og gerir það sýninguna aðsóknar mestu sýningu Leikfélags Akureyrar frá upphafi.
Rocky Horror er sett upp í samstarfi við Flugfélag Íslands og Valitor
Á Akureyri er úrval gistirýma við allra hæfi. Fjöldi góðra veitingastaða og verslana. Einnig er tilvalið að nota ferðina norður til að bregða sér á skíði!
Flugfélag Íslands býður upp á spennandi pakka fyrir þá sem vilja fljúga norður til að sjá söngleikinn.
Fylgstu með - allskyns tilboð á miðum og Rocky Horror disknum verða í boði.
Í glæsilegri uppfærslu LA koma fram margir af bestu söngvurum og leikurum landsins ásamt mögnuðum Geimverukór og Rocky Horror-bandinu.
Sýningin á Rocky Horror er sýnd í HOFI.
Í Rocky Horror segir frá tveimur þægum og prúðum unglingum, þeim Brad og Janet sem verða fyrir því óláni að bíllinn þeirra bilar úti á þjóðvegi. Eina húsið í nágrenninu er kastali Dr. Frankenstein. Húsbóndi kastalans reynist vera Dr. Frank N Furter sem kemur frá plánetunni Transilvaníu.
Dr. Frank N Furter er á kafi í vísindatilraun, er að búa til hinn fullkomna mann; Rocky. Í stað þess að fá hjálp við að gera við bílinn endar hið unga siðsama par innilokað í vægast sagt undarlegu og stórhættulegu ævintýri. Rocky Horror er söngleikur sem fólk um allan heim dáir og elskar. LA er stolt af að sýna loksins þetta frábæra verk þar sem fram koma margir af bestu söngvurum og leikurum landsins.
Richard O’Brien skrifaði The Rocky Horror Show árið 1973 og verkið var frumsýnt 19. júní sama ár í London. Sýningin gekk í langan tíma og hefur verið sett upp víða um heim allar götur síðan og alltaf notið mikillar hylli. Árið 1975 var svo gerð kvikmynd eftir söngleiknum; The Rocky Horror Picture Show.
Geimverur! Litadýrð! Drag!
Rokk og Ról!
Leikstjóri sýningar LA árið 2010 er Jón Gunnar Þórðarson tónlistarstjóri Andrea Gylfadóttir
Frank N Furter: Magnús Jónsson
Riff Raff: Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Magenta: Bryndís Ásmundsdóttir
Kolumbía: Andrea Gylfadóttir
Brad: Atli Þór Albertsson
Janet: Jana María Guðmundsdóttir
Sögumaður og Dr. Scott: Guðmundur Ólafsson
Rocky: Hjalti Rúnar Jónsson
Eddie: Matthías Matthíasson
Hljómsveitina skipa: Hallgrímur J. Ingvarsson, Halldór Gunnlaugur Hauksson, Stefán Daði Ingólfsson, Árni Heiðar Karlsson
Úr umfjöllun Júllla Júll:
"Það er ástæða til að tryggja sér miða strax, bæði til að missa ekki af og einnig til þess að geta farið aftur." Júlli Júll
Til hamingju allir þátttakendur í Rocky Horror, til hamingju L.A, til hamingju María leikhússtjóri í leikhúsinu með stóra hjartað og leikhúsinu sem þorir, til hamingju ágæti áhorfandi þú átt kost að að vera með……drífðu þig á eitt stærsta og kynþokkafyllsta “Show” sem lengi hefur sést …..þig gæti nefnilega langað aftur.
...Það er ljóst að það er búið að nostra við litríka, draumkennda og næstum fullkomna búninga, gervi, hárkollur og förðun. Þessir þættir undirstrika rokkshow-stemmninguna. Dansarnir, fimleikarnir og lýsingin/ljósashowið fá hæstu einkunn og bara það eitt er ástæða til að koma aftur og njóta. Sýning LA á Rocky Horror er eins og svert partý sem einhverjir hræðast, eru innst inni spenntir fyrir en enginn vill missa af.
...Ég hef það á tilfinningunni að Jón Gunnar Þórðarson frábær leikstjóri hafi gefið sig allan í þessa sýningu og að hann hafi náð að koma til skila mynd sem hann hefur haft í huga í upphafi, mynd af “Showi aldarinnar”.
..Leikhópurinn er vel samsettur og það er nánast eins og að hver einasti þátttakandi sé sérsniðinn fyrir sitt hlutverk Danshópurinn/Kórinn er kröftugur og hefur greinilega gaman af hlutunum, syngur vel og leikur listir sem að hrein unun er að horfa á.
..Hið snúna, eftirsótta og áhugaverða hutverk Frank N Furter er í höndum Magnúsar Jónssonar og á köflum náði hann að gera dásamlega vel og það á bara eftir að verða betra. Eyþór Ingi sem leikur Riff Raff syngur og leikur af svo mikilli snilld að það hálfa væri nóg. Atli Þór og Jana María sem Brad og Janet skila sínu mjög vel og syngja eins og englar, Jana er frábær og sexy söng/leikkona og Atli kom mér á óvart með sínum söng. ...Bryndís og Andrea sem Magenta og Columbia eru eins og sniðnar í sín hlutverk, söngur þeirra og raddir eru eins og sérpantaðar fyrir “showið”. Matti Matt leikur Eddie og er virkilega flottur. Það er eins og Guðmundur Ólafsson sögumaður hafi fylgt með handritinu að utan, það er bara eins og að hann hafi alltaf verið þarna og aldrei gert neitt annað. Rocky leikur ungur og áhugaverður leikari Hjalti Rúnar Jónsson, flottur á sviði og gaman verður að fylgjast með honum í framtíðinni.
...Andrea Gylfadóttir þessi reynslumikli tónlistarmaður sér um tónlistarstjórn og ég get ekki annað en gefið henni “High five”
L.A hefur á að skipa góðum og reynslumiklum hljóðmanni Gunnari Sigurbjörnssyni og gerir hann vel og í raun betur heldur en húsið og aðstæður bjóða uppá að sinni.
...Með fullri virðingu fyrir öðrum hópum sem hafa stigið á svið hjá L.A þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að hópurinn í kringum þessa sýningu er einn sá allra kraftmesti.
...Rocky Horror er stórt og dýrt verkefni og við erum heppin að fá að njóta slíks góðgætis hér norður við heimskautsbaug. Boltinn er því hjá fólkinu að mæta á og njóta fjölbreytilegra sýninga leikársins.
Takk fyrir mig - Júlíus Júlíusson