Leikfélag Akureyrar - LA

Tónleikaröð tileinkuð íslenskum söngfuglum, ævi þeirra og starfi. Jana María syngur og segir frá Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir

auglysing.jpg

Sögulegir söngfuglar

Tónleikaröð tileinkuð íslenskum söngfuglum, ævi þeirra og starfi

Jana María syngur og segir frá

Söng- og leikkonan Jana María Guðmundsdóttir heldur fjórðu tónleika sína í tónleikaröðinni Sögulegir söngfuglar fimmtudaginn 13. maí. Þá fjalla tónleikarnir um líf og störf Söngfuglsins Ellýjar Vilhjálms.  Undirleikari er Valmar Valjaots. 


Nú er komið að lokatónleikum í tónleikaröðinni Sögulegir söngfuglar. Áður hefur Jana María fjallað um Helenu Eyjólfsdóttur og Ingibjörgu Þorbergs við góðar undirtektir. Það er því vel við hæfi að ljúka þessari fyrstu röð tónleikanna á einum ástsælasta söngfugli Íslands fyrr og síðar, Ellý Vilhjálms. Notaleg stemning verður í fyrirrúmi og gestum er boðið í "betri stofu" leikhússins þar sem Jana María syngur og segir frá við undirleik Valmars Valjaots. Ilmandi kaffi, sitthvað sætt undir tönn og ljúfir tónar munu verða allsráðandi í leikhúsinu þetta kvöld. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri, síðast komust færri að en vildu!

Tónleikarnir hefjast kl.20 fimmtudaginn 13.maí nk. í Samkomuhúsinu. Miðaverð er 1500kr.

Undirleikari
  • Valmars Valjaots
Söngur

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf