Leikfélag Akureyrar - LA

LA og Friðrik V. Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn FRIÐRIK V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og

auglysing.jpg

Þjónn í súpunni

LA og Friðrik V

Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn FRIÐRIK V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og "óhefðbundna þjónustu" á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika á gesti og gestirnir leika á als oddi.

 


Nú eru nýir ”þjónar” með í för og forvitnilegt að vita hvernig þeir reynast!
Leikstjóri og höfundur er María Sigurðardóttir leikhússtjóri LA, en hún var í leikhópnum sem samdi og setti upp Þjón í súpunni í Iðnó fyrir nokkrum árum við gríðarlegar vinsældir.
Sagan hefur verið nú verið heimfærð á FRIÐRIK V og fjölskyldu. Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar  tvær sýningar eru eins.
Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum.
Það borgar sig því að vera snemma í því og panta borð í tíma.
 

Næstu sýningar:

 

 

  • Kl. 18.30 miðvikudaginn 3. febrúar
  • Kl. 22.00 föstudaginn  5. febrúar
  • Kl. 18.30 miðvikudaginn 10. febrúar
  • Kl. 22.00 föstudaginn 12. febrúar
  • Kl. 19.30 þriðjudaginn 16. febrúar

 

 
Verð kr.5.900.- innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni.

Miðapantanir eru í síma 4615775 eða á: fridrikv@fridrikv.is
Miðar óskast sóttir 1 degi fyrir sýningu, annars eru þeir seldir á sýningardag.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf