Leikfélag Akureyrar - LA

eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter. Síðustu sýningar fimmtudaginn 18.11.2010 - eigum örfáa miða! Þögli þjónninn er 300. frumsýning Leikfélags Akureyrar

auglysing.jpg

Þögli Þjónninn

eftir Nóbelsskáldið Harold Pinter

Síðustu sýningar fimmtudaginn 18.11.2010 - eigum örfáa miða!

Þögli þjónninn er 300. frumsýning Leikfélags Akureyrar sem stofnað var árið 1917. Verkið er sígildur gamanleikur eftir Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter.

Sett upp í samstarfi við KEA hótel og Bílaleigu Akureyrar



Í loftlausu kjallaraherbergi bíða tveir leigumorðingjar eftir næstu skipun. Þeir hafa unnið saman í fjölda ára, en í dag er eitthvað ekki eins og það á að vera. Undarlegar skipanir berast með matarlyftunni – að ofan.
Atli Þór Albertsson og Guðmundur Ólafsson fara á kostum sem þeir Ben og Gus í þessum listilega skrifaða sígilda gamanleik.

Þýðing: Gunnar Þorsteinsson
Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd: Bjarki Árnason, Dýri B. Hreiðarsson og leikhópurinn
Búningar: Leikhópurinn
Leikarar: Atli Þór Albertsson, Guðmundur Ólafsson

Sett upp í samstarfi við KEA hótel og Bílaleigu Akureyrar

Snyrtilegt og sárfyndið leikhús!
Það er 50 ár frá fyrstu frumsýningu á “The dumb waiter” eða Þögla þjóninum sem að snillingurinn og Nóbelsskáldið Harold Pinter sem að lést á aðfangadag 2008 skrifaði.
Mér fannst vel við hæfi að frumsýning númer 300 hjá Leikfélagi Akureyrar væri á þessu verki. Pinter var góður spretthlaupari í æsku, Þögli þjónninn hjá LA er eins og gott og árangursríkt spretthlaup. Sýningin er rétt um ein klst að lengd og ekkert hlé. Það er svo gott að eiga stund í leikhúsi og njóta heillar sýningar án utanaðkomandi athugasemda í hléi. Þannig var það með þessa áhugaverðu sýningu og eins og mér var að orði er ég kom út í lokin “þetta var leikhús”
....Leikararnir Atli Þór Albertsson og Guðmundur Ólafsson sitja afar vel í hlutverkunum og það var oft sem að þagnarstundirnar voru magnaðar og maður fann að salurinn naut þess að upplifa leikhúsið. Það er ekkert annað að segja um leikarana nema “Bravó” já og það sama má segja um alla aðstandendur. Ég held að vinnan á þessari sýningu hafið verið sérstök og allir sem að henni komu hafi unnið sem eitt lið og það lið hafi unnið af ástríðu. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur náð vel til leikaranna og hópsins og vitað hvað hann var að gera. Hér skilar hann snyrtilegri sýningu sem rennur afar vel. Leikhúsgestir á frumsýningarkvöldinu nutu hverrar mínútu í leikhúsinu þetta kvöld.
... Leikmyndin, ljós, tónlist og hljóðmynd alveg til fyrirmyndar og féllu svo vel að verkinu, allt svo passlegt og rétt.
Leiksskrár hjá L.A eru alltaf veglegar og vel gerðar þannig er það einnig núna en ég geri samt athugasemdir við að það vantar mynd af tveimur aðstandendum sýningarinnar.

Ég er ekki í aðstöðu til að meta þýðingu Gunnars Þorsteinssonar á verkinu en ég veit að sumar setningarnar eru kannski betri á ensku.
Ég óska L.A og samfélaginu til hamingju með sýninguna og þetta merka afmæli sem frumsýning númer 300 svo sannarlega er.
Júlíus Júlíusson

Dagatal

 Febrúar 2012 
SMÞMFFL
 1
2
2.febrúar:
Gulleyjan Nánar
3
3.febrúar:
Gulleyjan Nánar
4
4.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
5
5.febrúar:
Gulleyjan Nánar
678
9
9.febrúar:
Gulleyjan Nánar
10
10.febrúar:
Gulleyjan Nánar
11
11.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
12
12.febrúar:
Gulleyjan Nánar
131415
16
16.febrúar:
Gulleyjan Nánar
17
17.febrúar:
Gulleyjan Nánar
18
18.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
Lífsins karnival Nánar
19
19.febrúar:
Gulleyjan Nánar
202122
23
23.febrúar:
Gulleyjan Nánar
24
24.febrúar:
Gulleyjan Nánar
25
25.febrúar:
Gulleyjan Nánar
Gulleyjan Nánar
26272829 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf