Hafnarstræti 57
600 Akureyri
Villidýr og pólitík byggir á uppistandssýningum snillingsins Ricky Gervais. Sýningin var á fjölum LA á síðasta leikári, og vegna fjölda áskorana verða tvær sýningar í Samkomuhúsinu, 28. og 29. janúar.
það eru þeir Radíusbræður Davíð Þór og Steinn Ármann sem leiða saman hesta sína á ný í þessari sýningu og fara hreinlega á kostum!
Athugið: Um óheflað orðbragð er að ræða í sýningunni og hún því ekki fyrir börn.
Sýningin byggir á tveimur vinsælustu uppistandssýningum Bretlands fyrr og síðar; Animals og Politics, en höfundur þeirra beggja er snillingurinn Ricky Gervais. Hann sló sem kunnugt er rækilega í gegn sem höfundur og aðalleikari The Office þáttanna, sem eru margverðlaunaðir og einhverjir vinsælustu sjónvarpsþættir síðari ára. Hann hefur í kjölfarið orðið einhver þekktasti grínisti heims og komið víða við; leikið í Hollywood bíómyndum, gefið út barnabækur gert vinsælustu Podcast þætti veraldar og svo mætti lengi telja.
Það eru þeir Radíusbræður, Davíð Þór og Steinn Ármann, sem leiða saman hesta sína á ný í íslensku útgáfunni af þessum víðfrægðu Ricky Gervais uppistandssýningum. Hafa þeir gert þessar sýningar að sínum eigin með hjálp leikstjórans Gunnars B. Guðmundssonar, sem leikstýrði síðasta Skaupi og kvikmyndinni Astrópíu.
Áhorfendur fá í raun töfaldan skammt af uppistandi í einni sýningu; fyrir hlé er það Pólítik með Davíð Þór eftir hlé er það Villidýr með Steini Ármanni.
4 Stjörnur í Fréttablaðinu!
"Ármann og Davíð Þór þora"
" ...báðir orðnir þaulvanir að láta brandarann falla á réttum stað, þekkja andrúmið, kunna listina" PBB Fréttablaðið